Sími: 535 1900 | sjonarholl@sjonarholl.net
 

Reykjavík, 17. ágúst 2006

 

Efni: Endurskoðun laga um leikskóla nr. 78/1994.

 

Stjórnir  Sjónarhóls – ráðgjafarmiðstöðvar ses., Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, Umhyggju – félags til stuðnings langveikum börnum, Landssamtakanna Þroskahjálpar og ADHD samtakanna  þakka bréf, dags. 26. júní 2006, frá nefnd sem menntamálaráðherra hefur skipað til að gera tillögu að heildarendurkoðun laga um leikskóla nr. 78/1994. Stjórnirnar lýsa yfir áhuga á málefninu og vilja til að taka þátt í starfi nefndarinnar á síðari stigum. Í bréfinu er óskað eftir að tekin sé afstaða til eftirfarandi atriða:

 

  • Hvað ætti að hafa að leiðarljósi við endurskoðunina með hliðsjón af aukinni samfellu og sveigjanleika í skólastarfi?
  • Í ljósi reynslunnar af núgildandi lögum, hvaða þætti er talið brýnast að skoða við endurskoðunina?

 

Eftir að hafa kynnt sér ofangreind lög um leikskóla og reglugerð um starfsemi leikskóla frá 6. apríl 1995 með breytingum frá 9. maí 2001 og 22. ágúst 2002 vilja ofangreindar stjórnir koma eftirfarandi atriðum á framfæri:

 

1.         Mismunandi þörfum barna sé mætt: Mikilvægt er að í leikskólanum sé þörfum barna með mismunandi sérþarfir í víðum skilningi mætt. Við mönnun og hönnun aðstöðu fyrir leikskóla þarf að taka mið af því að börn hafa ólíkar þarfir. Vert er að benda á að sum börn hafa sérþarfir sem ekki eru skilgreindar sem sjúkdómar eða fatlanir skv. lögum en geta valdið verulegum erfiðleikum sé þeim ekki mætt. Það á t.d. við um börn með ofvirkni- og athyglisbrest og ýmsar skyldar hegðunar- og geðraskanir.

 

2.         Foreldrasamstarf: Samstarf foreldra og starfsfólks leikskóla, unnið á jafnræðisgrunni, er mikilvægt fyrir þroska og vellíðan allra barna. Þegar börn með sérþarfir eiga í hlut er það sérstaklega mikilvægt. Árangursríkast er ef samstarf foreldra og leikskóla er markvisst og náið frá upphafi skólagöngu barnsins.

 

3.         Rými: Á leikskólum er börnum yfirleitt sinnt í hópum. Sum börn þurfa að geta dregið sig í hlé frá hópnum til að fá næði. Með hliðsjón af núgildandi reglugerðum þurfa börn á leikskólum því frekar meira innanhússrými og stærra leiksvæði en minna. Þar sem takmarkaðir möguleikar eru á að stækka húsnæði eða leiksvæði hlýtur fjöldi barna sem tekið er við að miðast við það. Ef ekki er hægt að stækka húsrými eða leiksvæði til að mæta þörfum samfélagsins fyrir leikskólarými ætti frekar að stofna fleiri, minni leikskóla heldur en að þrengja að börnum með því að sinna fleirum í sama rými.

4.         Umhverfisáreiti: Sum börn eru viðkvæm fyrir hávaða og sjónrænu áreiti í umhverfinu. Við hönnun aðstöðu fyrir leikskóla þarf að taka tillit til þess t.d. með því að gæta að hávaðamörkum og lýsingu.

 

5.         Barngildi:  Við breytingu á reglugerð um leikskóla 9. maí 2001 var barngildi 5 ára barna minnkað úr 1,0 í 0,8. Lagt er til að þetta verði fært í fyrra horf og að barngildi 5 ára barns verði aftur 1,0. Fimm ára börn eru að undirbúa sig undir að flytjast úr grunnskóla í leikskóla. Þessi breyting er krefjandi fyrir þau sjálf, starfsfólkið sem annast þau og foreldra þeirra. Á þessum tímamótum þarf hópurinn sem heild ekki minni athygli en árin á undan. Börn með ýmsar sérþarfir eru viðkvæmari fyrir breytingum en önnur börn og til að mæta þörfum þeirra þurfa viðmiðunarstaðlar, eins og barngildi, að vera sveigjanlegir.

 

6.         Mönnun: Umönnun barna með sérþarfir í leikskóla krefst sérhæfðs starfsfólks. Við mönnun, bæði hvað varðar fjölda og sérhæfingu, þarf að taka tillit til samsetningar barnahópsins og þeirra sérþarfa sem þau lifa við.

 

7.         Menntun leikskólakennara og annarra starfsmanna leikskóla: Til að leikskóli án aðgreiningar geti staðið undir nafni þarf að huga vel að og efla umfjöllun um sérþarfir barna í grunn- og símenntun leikskólakennara og annarra starfsmanna leikskóla. 

 

8.         Fyrirkomulag þjálfunar: Fram undir þetta hafa börn yfirleitt þurft að sækja sjúkra-, iðju- og talþjálfun á sérhæfða þjálfunarstaði, stundum fjarri heimabyggð. Í seinni tíð hafa aðstandendur barnanna, þjálfarar og leikskólakennarar sýnt áhuga á að færa þjálfunina meira inn á leikskólana og samþætta hana daglegu leikskólastarfi. Stuðla þarf að framgangi þessarar þróunar til að auka sveigjanleika kerfisins þannig að það hæfi best aðstæðum hvers barns.

 

9.         Tilfærslur á milli kerfa: Til að tryggja hverju barni sem besta þjónustu og samfellu á milli þjónustu leikskólans og annarra kerfa, t.d. þegar barn flyst í grunnskóla eða þarf að leggjast inn á spítala er mikilvægt að leikskólinn sjái um, að fengnu samþykki forráðamanna, að láta nauðsynlegar upplýsingar og gögn fylgja þeim.

 

10.       Fjarvistir vegna veikinda: Sum börn með sérþarfir, ekki síst þau sem búa við langvinn veikindi, eru oft fjarverandi og ná ekki að nýta leikskólapláss sín að fullu. Huga þarf að sveigjanleika hvað varðar greiðslu leikskólagjalda fyrir þessi börn.  

 

Virðingarfyllst,

 

 

F.h. ADHD samtakanna                                               F.h. Landssamtakanna Þroskahjálpar                                     

 

 

F.h. Sjónarhóls–ráðgjafarmiðstöðvar ses.                      F.h. Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra                         

 

 

F.h. Umhyggju, félags til stuðnings langveikum

 

Upptaka af málþingi
Kynningarefni Sjónarhóls

 

Engilráð andarungi

 

Hvað er á dagskrá
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður
S
M
Þ
M
F
F
L
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Sjónarhóll
Háaleitisbraut 11-13
108 Reykjavík
Sími 535 1900