Sími: 535 1900 | sjonarholl@sjonarholl.net

Vorráðstefna Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins verður á Grand Hóteli 10. og 11. maí 2012 nánari upplýsingar á www.greining.is

 

18. apríl 2012

Glæsileg dagskrá Listar án landamæra er komin út.
Opnunarhátíðin verður í Ráðhúsi Reykjavíkur 18. apríl kl. 17:00. Hátíðin verður haldin víðsvegar um land.

Hvetjum alla til að kynna sér þessa metnaðarfullu dagskrá og vekjum athygli á því að FRÍTT ER Á ALLA VIÐBURÐI HENNAR.

Dagskrána er hægt að nálgast á www.throskahjalp.is

  

13. mars 2012

 

Hvað ræður för? 

 

Málþing um börn og ungmenni með hegðunar- og/eða geðraskanir. Fyrir aðstandendur barna með sérþarfir, alla sem veita þeim þjónustu og aðra sem láta sig velferð þeirra varða.

 

Sjónarhóll stendur fyrir málþingi um börn og ungmenni með hegðunar- og/eða geðraskanir, fimmtudaginn 29. mars klukkan 12.30 - 16.30 á Hótel Hilton Reykjavík Nordica.

 

Skráning á málþingið hér. 

  

Verð 2.800.- krónur.

 

Dagskrá málþingsins hér.

Í gær kom Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, færandi hendi til Sjónarhóls með ávísun að andvirði 363 þúsund krónur. Peningurinn er afrakstur styrktartónleika sem Félag leikskólakennara stóð fyrir í sumar í aðdraganda boðaðs verkfalls leikskólakennara og átti ágóðinn að renna til sveitarfélaga. Við móttöku ávísunarinnar til Sambands íslenskra sveitarfélaga tilkynnti Halldór að upphæðin yrði látin renna til Sjónahóls.

Við hjá Sjónarhóli þökkum kærlega fyrir okkur og það er skemmtilegt frá því að segja að styrkurinn verður nýttur til að gefa öllum leikskólum landsins Engilráðarbrúðu og brosbók Engilráðar.

Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og Guðríður Hlíf Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Sjónarhóls

Upptaka af málþingi
Kynningarefni Sjónarhóls

 

Engilráð andarungi

 

Hvað er á dagskrá
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður
S
M
Þ
M
F
F
L
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Sjónarhóll
Háaleitisbraut 11-13
108 Reykjavík
Sími 535 1900