Sími: 535 1900 | sjonarholl@sjonarholl.net
 

Sumardvöl

 

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra:Reykjadalur og Laugaland í Holtum upplýsingar: sími: 535-0900 eða http://www.slf.is

_____________________________

 

 Sumardvöl  Ás styrktarfélags

 

Sumarsæla á Suðurnesjum og Selfossi 

Í sumar býður Ás styrktarfélag upp á orlofsvikur á Selfossi og Suðurnesjum. Á Selfossi höfum við fengið inni í Lambhaga, orlofshúsi Þroskahjálpar á Suðurlandi en á Suðurnesjum höfum við aðstöðu í húsnæði skammtímavistarinnar Heiðarholti í Garði.  Aðbúnaður á báðum stöðum er mjög góður og staðirnir bjóða upp á óendanlega möguleika varðandi afþreyingu og skemmtun.    

Dagskrá sumardvalarinnar verður fjölbreytt að vanda og lögð áhersla á að virkja frumkvæði þátttakenda. Eins og áður verða bílar til umráða og farið í styttri og lengri ferðir á fallega og skemmtilega staði.     

 

Nánari upplýsingar er hægt að finna hér.

_____________________________

 

Orlofsdvöl 2012 fyrir fólk með fötlun á einhverfurófi og aðrar fatlanir, 18 ára og eldri.

Verðum með  frístundar / orlofsdvöl að  Svarfhóli í Hvalfjarðarsveit árið 2012. Orlofsdvölin er fyrir fólk með fötlun á einhverfurófi, fyrir fólk með aðrar fatlanir og hefur þar að auki náð 18 ára aldri.

Dagskrá ársins 2012 er  sem hér segir:

08. febrúar til 12. febrúar       þorragleði – þorrablótsdagar.

04. apríl til 10. apríl                 páskavika.

28. maí til 27. ágúst                sumarorlof.

 

Orlofer sá tími sem tekið er frí frá vinnu eða námi og sem einstaklingurinn notar til eigin hugðarefna, ferðalaga, hvíldar eða hverrar þeirrar iðju sem viðkomandi kýs.

Markmiðið: er að framfylgja skilgreiningu um orlof, eftir því sem við verður komið:

 

Orlofsgestum er m.a. boðið upp á:

*        einstaklingsmiðaða orlofsþjónustu og stuðning

*        Að sérhver orlofsþegi getur notið afslöppunar- og hvíldar, frístundar- og tómstundagamans, við sitt hæfi eftir því sem við verður komið.

*        Dagsferðir – bílferðir - göngutúrar

*        Sund í nálægum sundlaugum

*        Veiðiferðir í nærliggjandi vötn

*        Út að borða – sjoppuferðir

*        Samverustundir – tónlist – sjónvarpsgláp og tölvuleikir

*        Útigaman – leikir

*        Letilíf o.m.fl.

 

Orlofsþegar ráða sjálfir hvort þeir notfæra sér  það sem í boði er hverju sinni.

 

Menntun- og reynsla: Löng og mikla reynslu í starfi og leik með fötluðu fólki. Menntun starfsmanna spannar vítt svið. Við orlofsdvölina starfar þroskaþjálfi, tómstundarleiðbeinandi, kennari,  sérkennari og þroskauppeldisfræðingur með menntun sem byggð á fræðum Rudolfs Steiners.

 

Úttekt og leyfi:  Heilbrigðiseftirlit Hvalfjarðarsveitar, skipulags- og byggingarfulltrúi, slökkviliðsstjóri Akraness og fulltrúi frá Vinnueftirlitinu komu á staðinn  3. febrúar 2012 og tóku út bæði  húsnæðið og aðstöðuna.  Gáfu sitt samþykki fyrir starfseminni.

Hægt er að panta orlofsdvöl  og eða fá nánari upplýsingar hjá forráðamönnum í:

 

S: 897 7106 - Guðmundur Már Björgvinsson  gmarb@internet.is

S: 692 0844 - Jan Agnar Ingimundarson        jan@hive.is

S: 862 6640 - Þórður Magnússon                     tmagg@simnet.is

_________________________________

 

 

Sumarbúðir Rauða krossins sumarið 2011
 
Sumarbúðir fyrir fatlaða

Sumarbúðir Rauða krossins 2011 fyrir fatlaða 16 ára og eldri, verða reknar í Stykkishólmi, eitt tímabíl og á Löngumýri, þrjú tímabil.

Stykkishólmi frá 27. júní - 4. júlí og á Löngumýri: 8..-15. júlí, 18.-23. júlí og 24.-29. júlí.

 

Þátttökugjald er:

1.       Tímabil  á Löngumýri  kr. 50.000
2.       Tímabil á Löngumýri  kr. 36.000
3.       Tímabil á Löngumýrir kr. 36.000
1.       Tímabil í Stykkishólmi kr. 44.000

Nánari upplýsingar gefur Guðný Björnsdóttir svæðisfulltrúi í síma 465 2428.

 

__________________________________
                                   

Sumarbúðir í Alviðru: hér

__________________________________ 

 

Sumarbúðirnar Ævintýraland, Hvanneyri, Borgarfirði: http://www.sumarbudir.is

__________________________________

 

Sumardvöl að Nýjabæ (Sandvíkurhreppi) 801 Selfoss  halldoragunn@simnet.is

 

Allar upplýsingar veitir Halldóra Gunnarsdóttir  í síma: 482-1127 eða GSM: 894-4143

 __________________________________

 

Sumarbúðir Íþróttasambands Fatlaðra 2011

 

Nánari upplýsingar hér

Umsóknareiðublað hér

                                     _______________________________

 

Sumarnámskeið ÍTR: http://www.reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-3697/6079_view-1781/ 

_______________________________________

 

Gauraflokkur

Skógarmenn KFUM í samstarfi við ADHD samtökin bjóða uppá sumarbúðir fyrir 10-12 ára drengi með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir.Verkefnið er styrkt af Forvarnar- og framfarasjóði Reykjavíkurborgar.

Markmið Gauraflokks
Markmiðið með Gauraflokknum er að bjóða þennan hóp drengja velkominn í sumarbúðir í Vatnaskógi þar sem þörfum þeirra verður mætt á skilningsríkan og uppbyggilegan hátt.

Aðstaðan í Vatnaskógi
Vatnaskógur er frábær staður fyrir kraftmikla og vaska drengi. Þar eru bátar, íþróttahús, fótboltavellir, frjálsíþróttasvæði, frábærar gönguleiðir, baðströnd, ævintýralegur skógur, bókasafn ofl. Dagskráin í Vatnaskógi er fjölbreytt og samanstendur af frjálsum dagskrártilboðum, kvöldvökum, kristinni fræðslu, söng, mikilli útiveru og reglulegum matartímum. Dagsskipulag Vatnaskógar er afar heppilegt fyrir drengi með ADHD vegna þess að ramminn er skýr, þeir hafa sitt sæti við sitt borð með sinn foringja. Hvert borð er í sama svefnsal og herbergjum. Matartímar eru mjög reglulegir. Fjölmörg tilboð um viðfangsefni sem mæta ólíkum áhugasviðum. Mun fleiri starfsmenn verða í þessum flokk en í hefðbundnum flokkum og því auðveldara að mæta hverjum og einum á hans forsendum.

ATH: Umsóknir
Sækja þarf um dvöl í Gauraflokk á sérstöku umsóknarformi smellið HÉRNA. Farið verður yfir umsóknir í þeirri röð sem þær berast og með hliðsjón af markhópi Gauraflokks. Öllum umsóknum verður svarað. Gert er ráð fyrir að taka á móti 50 drengjum í Gauraflokk.

Nánari upplýsingar
Frekari upplýsingar um starfið í Vatnaskógi má fá í síma 588-8899.

Að Gauraflokki standa:
Ársæll Aðalbergsson framkvæmdastjóri Vatnaskógar, Sigurður Grétar Sigurðsson sóknarprestur á Hvammstanga, Bóas Valdórsson sálfræðingur BUGL í samvinnu við fulltrúa ADHD samtakan

 

______________________

 

Sveit fyrir alla ehf
Norðtungu 3, Þverárhlíð
311 Borgarnes
 
Er fyrirtæki sem ég stofnaði í þeim tilgangi að bjóða fötluðum einstaklingum upp á sveitardvöl um lengri eða skemmri tíma allt árið um kring.
 
Í sumar ætla ég að starfrækja sumardvöl.


Á veturnar hef ég möguleika á að taka einstaklinga í helgardvöl, vikudvöl eða lengri tíma.
 
Ætlun mín er að bjóða börnum og fullorðnum einstaklingum
upp á dvöl í fallegu og rólegu umhverfi í návist við ýmis dýr svo sem hunda, ketti, kanínur og kanínuunga, kindur og lömb, hesta og folald, kálfa, hænur og hænuunga og endur. 
 
Sveit fyrir alla ehf,  Norðtungu 3 (Þverárhlíð) 311 Borgarnesi
sjulia@hive.is
 
 
Allar upplýsingar veitir Steinunn Júlía Steinarsdóttir Þroskaþjálfi
í síma: 5667414 eða GSM: 895-9414 eða email: sjulia@hive.is

 

__________________________________

  

 

Holt í Borgarfirði

 

Sumardvölin að Holti er staðsett rétt utan við Borgarnes. Húsið er mjög vinarlegt, góð aðstaða og erum við með stóran sólpall sem á eftir að vera mjög vel nýttur. Bóndabær er í göngufæri frá Holti og munum við vera dugleg að ganga þangað og skoða dýrin. Holt er hugsað fyrir þá sem eiga erfitt með mikið ferðalag og vilja hafa rólegt í sumarfríinu sínu. Ekki er farið í margar ferðir en við munum fara út að borða og á kaffihús, sund og hestbak.

Tímabilið er: 18. ágúst - 25. ágúst.

Hámark 7 manns 16 ára og eldri.

Verð fyrir vikuna: 70.000,-

Nánari upplýsingar er hægt að fá í síma 662-0328 Aðalheiður Þ. Bragadóttir.

  

________________________________

Stelpur í stuði

Sumarbúðir í Kaldárseli dagana 6. - 10. júní 2011.

Í sumar verðu rboðið upp á sumarbúðir fyrir 10-12 ára (1999 -2001) stelpur með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir.

Markmiðið er að bjóða stelpunum upp á sumarbúðadvöl þar sem þær geta notið sín í öruggu og skemmtilegu umhverfi þar sem þörfum þeirra er mætt á skilningsríkan og uppbyggilegan hátt.

Opnað hefur verið fyrir skráningar á heimasíðu KFUK www.kfuk.is (Stelpur í stuði).

Gert er ráð fyrir að taka á móti 20 stúlkum í flokkinn.

 

Nánari upplýsingar má fá í síma: 588-8899.

 

                                 _____________________________

 

 Sumarnámskeið fyrir unglinga með röskun á einhverfurófi:

 

Umsjónarfélag einhverfra ætlar að halda þrjú sumarnámskeið fyrir unglinga, 12-18 ára (fædd 1993-1999), í júní og júlí.  Verða þau með svipuðum hætti og í fyrrasumar.  Hvert námskeið stendur í tvær vikur og eru þau haldin í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi. Námskeiðin verða 20.6-1.7, 4.7-16.7 og 18.7-29.7.  Námskeiðisgjald verður kr. 20.000,-.  Er þetta samstarfsverkefni   Sóroptimistafélags Reykjavíkur og Umsjónarfélags einhverfra. Skráningin fer fram á netinu á síðunni  http://minnstyrkur.wordpress.com

Skráningin verður opin til 6. maí.  Við hvetjum ykkur til að skrá sem fyrst og tilgreina sem best það sem spurt er um í skráningarforminu.  Ef eitthvað er óljóst, þá skulið  þið senda tölvupóst á netfangið einhverf@vortex.is eða hringja i Sigrúnu í síma 8972682.

Nánari upplýsingar á  http://minnstyrkur.wordpress.com

 

______________________________________
 
 
Knattspyrnunámskeið Aspar og Víkings:
 
 Íþróttafélagið Ösp og Knattspyrnufélagið Víkingur munu standa að knattspyrnunámskeiðum fyrir fatlaða og þroskahamlaða krakka/unglinga í sumar.

• Um er að ræða tvö tveggja vikna námskeið í senn og hefst fyrsta námskeið 11. júlí og er til 22. júlí og hið seinna byrjar 25. júlí og er til 5. ágúst.
• Hvert námskeið er frá mánudegi til föstudags , helgar eru ekki með taldar.
• Hvert násmkeið byrjar kl.08.30 á hverjum degi og stendur til kl.12
• Krakkar eiga að koma með nesti  með sér sem verður snætt í kaffitímanum/pásunni sem tekin er í kringum kl.10

Markmið námskeiðsins eru:

• Bæta grunntækni í knattspyrnu
• Stuðla að heilsusamlegri hreyfingu
• Stuðla að góðum félagsskap
• Auka áhuga á knattspynu og hreyfingu almennt
• Stuðla að jákvæðri upplifun af  knattspyrnu  og  hreyfingu
• Að allir skemmti sér og læri eitthvað
Kostnaður er  kr 8.000,- fyrir námskeið

Nánari upplýsingar veitir Darri McMahon í síma 8678049 eða Ólafur Ólafsson formaður. Sími 8998164. Netfang: ospin@ospin.is
 
___________________________
 
 
Útilífsskóli skáta: hér
 
___________________________
 
 

Sumarúrræði á höfuðborgarsvæðinu sumarið 2010.

Garðabær:  Ekki  nein sérúrræði fyrir börn með sérþarfir.  Garðabær er ekki með leikjanámskeið, íþróttafélögin og skátarnir sjá um þau.  Sími 525 8500

 

Mosfellsbær:Stuðningur er veittur á leikjanámskeið og í unglingavinnu.  18-20 ára fá stuðning í bæjarvinnu.  Íþróttafulltrúi: Sigurður s: 566 6754, tómstundafulltrúi: Edda s: 566 6058.

 

Reykjavík: Stuðningur á leikjanámskeið fyrir börn, frístundaklúbbar fyrir fötluð börn 10-16 ára, stuðningur í unglingavinnu, vinnutengd verkefni í frístundaklúbbum fyrir börn í 8. Til 10. bekk.  Hitt húsið – vinna með stuðningi fyrir unglinga 16-20 ára.                           Vinnuskólinn: Kolbrún Ingibjörg Jónsdóttir kij@hi.is                          

ÍTR: Katrín Þórdís Jacobsen katrin.thordis.jacobsen@reykjavik.is,    

Hitt húsið: Jenný Magnúsdóttir jenny@hitthusid.is

 

Seltjarnarnes: Stuðningur er veittur á leikjanámskeið.Nilsína Larsen s: 595 9177. Stuðningur einnig í unglingavinnunni.  Steinunn Árnadóttir s: 595 9183

 

Hafnarfjörður:Eitt leikjanámskeið ætlað börnum með sérþarfir.  Reynt að veita stuðning inn á almenn leikjanámskeið ef það hentar betur.  Vinnuskólinn með sér hóp fyrir unglinga með sérþarfir.  Reynt að koma til móts við aðrar þarfir.  Sigurgeir / Ragna s: 565 1899. 

 

Kópavogur: Sumarnámskeið fötluð börn og unglina á aldrinum 6 til 15 ára, auka þess vinnutengd úrræði fyrir ungmenni frá 16 til 20 ára.  Anna Margrét Erlingsdóttir s: 570 1500.

Upptaka af málþingi
Kynningarefni Sjónarhóls

 

Engilráð andarungi

 

Hvað er á dagskrá
Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður
S
M
Þ
M
F
F
L
29
31
1
2
4
5
7
8
9
12
14
15
16
18
19
21
22
23
26
28
29
1
3
4
6
7
8
10
Sjónarhóll
Háaleitisbraut 11-13
108 Reykjavík
Sími 535 1900